Fréttir

true

Gámasvæði til fyrirmyndar

Móttaka fyrir sorp til endurvinnslu er staðsett í vesturjaðri Melahverfis í Hvalfjarðarsveit. Áskell Þórisson í Ægissíðu, og fyrrum Bændablaðsritstjóri, var að nota svæðið í morgun og sagði það vera til hreinnar fyrirmyndar. „Svo einfalt er það,“ sagði hann og sendi Skessuhorni meðfylgjandi mynd. „Mér sýnist líka að það sé boðið upp á alla þá flokka…Lesa meira

true

Jafntefli hjá Reyni og Smára í fyrsta leik

Reynir Hellissandi tók á móti Smára í fyrstu umferð í B riðli 5. deildar karla í knattspyrnu í gær og var leikurinn á Ólafsvíkurvelli. Lítið markvert gerðist fyrsta hálftímann í leiknum en þá gerðu Reynismenn tvær skiptingar með þriggja mínútna millibili. Út af fóru þeir Kári Viðarsson sem verður fertugur seint á árinu og Dominik…Lesa meira

true

Skagakonur töpuðu fyrir FHL í markaleik

FHL og ÍA tókust á í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu í gær og var leikurinn í Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði. Heimakonur byrjuðu betur í leiknum og komust yfir með marki frá Emmu Hawkins á 19. mínútu. Sjö mínútum síðar eftir gott uppspil ÍA fékk Erla Karitas Jóhannesdóttir knöttinn úti á kanti, geystist með hann í átt…Lesa meira

true

Flottir fiskar á land í kósýferð í Leirá

„Við, Sara Huld Halldórsdóttir konan mín, vorum að plana að taka eina nótt í bústað eða á hóteli,“ sagði Ómar Smári Óttarsson í samtali við tíðindamann Skessuhorns og bætti við: „Ég náttúrulega ákvað að slá tvær flugur í einu höggi og keypti dag í Leirá þar sem er lítið huggulegt veiðihús og auðvitað þá gat…Lesa meira

true

Raftar buðu í kaffi í Þinghamri

Það var margt um manninn í og við félagsheimilið Þinghamar í Stafholtstungum á laugardaginn þegar Raftar, bifhjólafjelag Borgarfjarðar, buðu gestum í kaffi og vöfflur. Ökumenn á fjölmörgum bifhjólum litu við til að styrkja starf Raftanna en skráðir félagar eru 132 en um 50 þeirra eru virkir. Nokkur mikil umræða var á staðnum um landsmót bifhjólafólks…Lesa meira

true

Víkingur náði jafntefli fyrir austan

Önnur umferð 2. deildar karla í knattspyrnu fór fram á laugardaginn og í Fjarðarbyggðarhöllinni á Reyðarfirði tóku heimamenn í KFA á móti Víkingi Ólafsvík. KFA komst yfir á 18. mínútu þegar Marteinn Már Sverrisson komst inn fyrir vörn Víkings, hann átti skot með vinstri fæti og inn lak boltinn. Fimm mínútum síðar fengu heimamenn hornspyrnu…Lesa meira

true

Íbúalýðræði og íbúasamráð kannað á Vesturlandi

Í nýlegri íbúakönnun sem Vífill Karlsson hagfræðingur hjá SSV vann var leitað vísbendinga um íbúalýðræði sveitarfélaga vítt og breitt um landið. Í þeim tilgangi var spurt: „Hversu vel finnst þér sveitarfélagið leita eftir sjónarmiðum eða skoðunum íbúanna?“ Fram kemur að á Vesturlandi var þó nokkur breidd í svörum eftir sveitarfélögum. Í Dölunum töldu hlutfallslega fæstir…Lesa meira

true

Kári með góðan útisigur gegn Víði

Kári og Víðir áttust við í 2. umferð þriðju deildar karla í knattspyrnu á föstudagskvöldið og var viðureignin á Nesfisksvellinum í Garði. Káramenn voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og áttu meðal annars skot í þverslá og fengu nokkur góð færi sem markvörður Víðis varði vel. Heimamenn áttu tvær skyndisóknir þar sem þeir komust einn…Lesa meira

true

Skaginn vann góðan sigur á Vestra

Nýliðar ÍA og Vestra mættust í sjöttu umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu á laugardaginn og var leikurinn á þungum og blautum Akranesvelli. Heimamenn voru sterkari aðilinn í frekar bragðdaufum fyrri hálfleik án þess að skapa sér mörg færi. Gestirnir voru nálægt því að ná forystu á 35. mínútu þegar Vladimir Tufedgzic átti skot að…Lesa meira

true

Golfkúlur slegnar af ungviði í Borgarnesi

Golfklúbbur Borgarness bauð nemendum Grunnskóla Borgarness í golf síðastliðinn föstudag, en yfir 300 nemendur fengu þá smjörþefinn af íþróttinni. Snæbjörn Óttarsson, formaður Golfklúbbs Borgarness, tók á móti nemendum og sýndi glæsitakta við kennsluna. Dagurinn byrjaði með því að miðstig grunnskólans mætti upp á Hamarsvöll, síðar tók við yngsta stig skólans áður en elsta stigið mætti…Lesa meira