
Súlurit sýnir útkomu yfir landið allt. Graf: Vífill Karlsson.
Íbúalýðræði og íbúasamráð kannað á Vesturlandi
Í nýlegri íbúakönnun sem Vífill Karlsson hagfræðingur hjá SSV vann var leitað vísbendinga um íbúalýðræði sveitarfélaga vítt og breitt um landið. Í þeim tilgangi var spurt: „Hversu vel finnst þér sveitarfélagið leita eftir sjónarmiðum eða skoðunum íbúanna?“ Fram kemur að á Vesturlandi var þó nokkur breidd í svörum eftir sveitarfélögum. Í Dölunum töldu hlutfallslega fæstir þátttakenda sveitarfélagið standa sig illa í að leita eftir sjónarmiðum íbúanna, eða um 17%. Dalirnir voru þannig að standa sig best á landsvísu en mestrar óánægju gætti í Fjarðabyggð þar sem þetta hlutfall var 50%.