
Gámasvæði til fyrirmyndar
Móttaka fyrir sorp til endurvinnslu er staðsett í vesturjaðri Melahverfis í Hvalfjarðarsveit. Áskell Þórisson í Ægissíðu, og fyrrum Bændablaðsritstjóri, var að nota svæðið í morgun og sagði það vera til hreinnar fyrirmyndar. „Svo einfalt er það,“ sagði hann og sendi Skessuhorni meðfylgjandi mynd. „Mér sýnist líka að það sé boðið upp á alla þá flokka sem skipta almenning máli við endurvinnslu. Það ber að hrósa því sem vel er gert.“