Snæbjörn Óttarsson ásamt hópi nemenda. Ljósmyndir: hig

Golfkúlur slegnar af ungviði í Borgarnesi

Golfklúbbur Borgarness bauð nemendum Grunnskóla Borgarness í golf síðastliðinn föstudag, en yfir 300 nemendur fengu þá smjörþefinn af íþróttinni. Snæbjörn Óttarsson, formaður Golfklúbbs Borgarness, tók á móti nemendum og sýndi glæsitakta við kennsluna. Dagurinn byrjaði með því að miðstig grunnskólans mætti upp á Hamarsvöll, síðar tók við yngsta stig skólans áður en elsta stigið mætti á nýja og glæsilega æfingasvæðið við Hamarsvöll.

Golfkúlur slegnar af ungviði í Borgarnesi - Skessuhorn