Stanslaust straumur bifhjólafólks var upp á Varmaland á laugardaginn. Ljósmyndir: hig

Raftar buðu í kaffi í Þinghamri

Það var margt um manninn í og við félagsheimilið Þinghamar í Stafholtstungum á laugardaginn þegar Raftar, bifhjólafjelag Borgarfjarðar, buðu gestum í kaffi og vöfflur. Ökumenn á fjölmörgum bifhjólum litu við til að styrkja starf Raftanna en skráðir félagar eru 132 en um 50 þeirra eru virkir. Nokkur mikil umræða var á staðnum um landsmót bifhjólafólks sem verður einmitt haldið á Varmalandi dagana 4. til 7. júlí í sumar en Sniglarnir munu sjá um mótshald en mikið verður um dýrðir þessa daga þar sem haldið verður upp á 40 ára afmæli samtakanna.

Raftar buðu í kaffi í Þinghamri - Skessuhorn