Fréttir

true

Boða til íbúafunda vegna sameiningarviðræðna

Verkefnahópur um óformlegar sameiningarviðræður sveitarfélaganna Borgarbyggðar og Skorradalshrepps hafa nú boðað til tveggja íbúafunda í því skyni að eiga samráð við íbúa varðandi mögulega sameiningu sveitarfélaganna m.a. út frá styrkleikum, áskorunum og framtíðarsýn íbúa. Fundirnir verða báðir miðvikudginn 28. febrúar næstkomandi. Sá fyrri verður í Hjálmakletti í Borgarnesi klukkan 17-19 en síðari fundurinn er í…Lesa meira

true

Æfingar í fullum gangi við Sjúskað Sjobbí Sjóv

Íbúar í Borgarbyggð geta farið að reima á sig leikhússkóna því nú standa yfir stífar æfingar hjá nemendum Menntaskóla Borgarfjarðar, við uppfærslu verksins Rocky Horror Show – sem hefur verið þýtt af nemendum sem „Sjúskað Sjobbí Sjóv.“ Blaðamaður greip Rebekku Magnúsdóttur leikstjóra þar sem hún var að skipuleggja rennsli í Hjálmakletti í Borgarnesi. „Við erum…Lesa meira

true

Líflegar umræður á fundi á Reykhólum um atvinnuþróun og nýsköpun

Síðasta þriðjudag var boðað til undirbúningsfundar að stofnun atvinnu- og uppbyggingarklasa í Reykhólahreppi. Markmiðið með fundinum var að skapa umræðu- og samstarfsvettvang fyrir alla sem áhuga hafa á atvinnuþróun, nýsköpun og annarri uppbyggingu í Reykhólahreppi. Hrafnkell Guðnason, verkefnastjóri framkvæmda og uppbyggingar á vegum Reykhólahrepps, var með framsögu og fór yfir hvað klasastarfsemi gengur út á.…Lesa meira

true

Hægt að sækja um fjárfestingastuðning í nautgriparækt

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um fjárfestingastuðning í nautgriparækt í samræmi við reglugerð um stuðning við nautgriparækt. Umsóknum um fjárfestingastuðning vegna framkvæmda á árunum 2023-2024 skal skilað inn rafrænt á Afurð eigi síðar en 31. mars. „Markmið stuðningsins er að hraða því að framleiðendur standist kröfur samkvæmt gildandi reglugerð um velferð nautgripa. Skilyrði fyrir veitingu…Lesa meira

true

Allt á síðasta snúningi í Lyngbrekku

Leikdeild Umf. Skallagríms hefur frá því í janúar æft leikritið Allt á síðasta snúningi, eftir Aðalstein Bergdal. Eins og margir þekkja er leikdeildin rekstraraðili félagsheimilisins Lyngbrekku þar sem æfingar fara fram. Frumsýna á verkið á hlaupársdag, fimmtudaginn 29. febrúar klukkan 20:30. Blaðamanni Skessuhorns var boðið á æfingu á leikritinu í gærkvöldi. Ellefu manns eru í…Lesa meira

true

Hringferð þingflokks Sjálfstæðisflokksins hefst í dag

Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins heldur í sína árlegu hringferð dagana 22. – 27. febrúar.  „Í þessum fyrsta legg hringferðarinnar mun þingflokkurinn funda á 18 stöðum hringinn í kringum landið þar sem fólki gefst tækifæri til að eiga beint og milliliðalaust samtal við þingmenn og ráðherra um þau mál sem helst á brenna. Hringferðin hefst í Reykjanesbæ í…Lesa meira

true

Ritað undir samning um móttöku flóttafólks til sex mánaða

Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs Akraneskaupstaðar síðasta þriðjudag var þjónustusamningur um samræmda móttöku flóttafólks milli Akraneskaupstaðar og félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins með gildistíma til loka árs 2024 lagður fram til staðfestingar. Kveður samningurinn á um að sveitarfélagið þjónusti hundrað einstaklinga en sú tala tekur mið að raunfjölda þeirra sem eru nú þegar í þjónustu sveitarfélagsins. Fyrir…Lesa meira

true

Kristinn fékk náttúruverndarviðurkenninguna afhenta

Í gær var Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra á ferð um Vesturland. Síðdegis hitti hann m.a. hóp fólks í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi. Þar fræddi þjóðgarðsvörður um starfsemina sem þar fer fram. Í framhaldi af fræðslu og umræðum var Kristni Jónassyni bæjarstjóra Snæfellsbæjar afhent Náttúruverndarviðurkenning Sigríðar í Brattholti fyrir árið 2023. Tilkynnt var um þessa útnefningu 16.…Lesa meira

true

Umhverfisstofnun opnar formlega skrifstofu á Hvanneyri

Það var mikið um dýrðir þegar Umhverfisstofnun Íslands opnaði formlega starfsstöð sína við Hvanneyrargötu 3 á Hvanneyri í gær. Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra nefndi í ávarpi sínu að eitt af markmiðum sínum í ráðuneytinu væri að fjölga störfum út á landi, enda eru flest verkefni sem hans ráðuneyti er að sinna á…Lesa meira

true

Andlát – Sigurður R Guðmundsson fyrrum skólastjóri

Látinn er Sigurður Reynir Guðmundsson íþróttakennari og fyrrum skólastjóri í Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit, 93 ára að aldri. Hann var einkum þekktur fyrir söng, kennslu, skólastjórn og leiðsögumennsku. Sigurður fæddist 6. júlí 1930 og ólst upp á Hvanneyri. Faðir hans var Guðmundur Jónsson sem var kennari á Hvanneyri þegar Sigurður fæddist, en síðar skólastjóri við Bændaskólann,…Lesa meira