Fréttir

true

Nemendur í Grunnskóla Borgarness afhentu húllahringi

Nemendur í 2. bekk í Grunnskóla Borgarness kynntu í gærmorgun verkefni sitt í áfanganum textíl, en þau hafa notað rafmagnsrör auk rafmagnslímbands til að útbúa húllahringi. Nemendurnir bjuggu til ellefu stykki af húllahringjum og eru þeir ætlaðir öllum nemendum skólans. Nemendur gáfu stutta kynningu á því hvernig eigi að nota húllahringi og afhentu loks skólastjóra…Lesa meira

true

Varð að segja skilið við körfuboltann eftir fjórða höfuðhöggið

Stefán Karel aflraunamaður og íbúi í Hólminum tekinn tali Stefán Karel Torfason og tíkin Monsa taka á móti blaðamanni á fallegum febrúarmorgni í Stykkishólmi. Stefán hætti keppni í körfubolta ungur að aldri vegna fjölda höfuðmeiðsla og snéri sér að kraftlyftingum. Nokkrum árum síðar og mörgum kílóum þyngri stóð hann uppi sem sterkasti maður Íslands árið…Lesa meira

true

Ökumenn eru mikið í símanum við akstur

Afskipti voru höfð af um 26 ökumönnum í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku vegna of hraðs aksturs. Þá voru hraðabrot 13 ökumanna til viðbótar mynduð með færanlegri hraðamyndavél. Nokkuð var um afskipti af ökumönnum vegna símanotkunar og einnig voru nokkrir ekki með ökuréttindi í gildi er að var gáð. Árekstur tveggja bifreiða varð…Lesa meira

true

FVA frumsýnir Grease í apríl

Það er skammt stórra högga á milli í menningarlífinu á Akranesi um þessar mundir. Fyrir skömmu lauk sýningum Grundaskóla á söngleiknum Úlfur úlfur sem naut mikilla vinsælda þar sem uppselt var á alls ellefu sýningar og í byrjun maí stefna nemendur á unglingastigi í Brekkubæjarskóla á að frumsýna söngleikinn Diskóeyjuna. Það er ekki allt upptalið…Lesa meira

true

Unnið er að því að gera Soffíu III upp

Í verkstæðishúsi Jörva ehf á Hvanneyri, í skjóli Hauks Júlíussonar, er nú í gangi áhugavert verkefni. Þar vinna þrír karlar flesta laugardaga við uppgerð á Reykholtsrútunni Soffíu III, en þeir festu fyrir fjórum árum kaup á bílnum norður í Skagafirði og ætla sér nú að koma í sem best horf og mála í upprunalegu litunum.…Lesa meira

true

„Ég segist alltaf vera Snæfellingur og ættaður úr Hnappadal“

Rætt við Lárus Viðar Lárusson um árin í Mexíkó og komuna heim til Íslands Römm er sú taug/ er rekka dregur/ föðurtúna til. Svo orðaði Sveinbjörn Egilsson skáld þýðingu sína á hluta saknaðarljóðs rómverka skáldins Óvíðs. Þrjár línur sem eru mörgum Íslendingum svo tamar (þó kannski sú fyrsta einna tömust) að margur veit ekki hvaðan…Lesa meira

true

Tuttugu menningartengd verkefni hlutu styrk

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar fimmtudaginn 15. febrúar var samþykkt úthlutun menningar- og safnanefndar til menningartengdra verkefna árið 2024 en alls var úthlutað 3.520.000 króna til eftirfarandi 20 verkefna: Leiklistarsmiðjur hjá Verkstæðinu menningarmiðstöð, Sara Blöndal – kr. 450.000. Fræðslu- og minningarsýning um Gutta, Helena Guttormsdóttir – kr. 300.000. Leiksýning leiklistarklúbbsins Melló, Nemendafélag FVA – kr. 300.000.…Lesa meira

true

Fjórar ARR kindur til viðbótar í Vífilsdal

Síðastliðinn föstudag komu niðurstöður vegna sýnatöku úr rúmlega helming ærstofnsins í Vífilsdal í Dölum, en þau sýni voru aðallega tekin úr eldri hluta ánna. Á vef RML er greint frá því að fjórar ær fundust sem bera ARR gen. „Þær eru allar talsvert skildar og því komin fram ákveðin vísbending um líklegar ættlínur. Næsta skref…Lesa meira

true

Sagði Bifrastarglampann ekki muna dvína

Alls voru 88 nemendur útskrifaðir úr námi við Háskólann á Bifröst á háskólahátíð sem að þessu sinni fór fram í Hjálmakletti í Borgarnesi 17. febrúar sl. Þar af brautskráðist tæplega helmingur nemenda, eða 42, með meistaragráðu. Í ávarpi sínu við athöfnina hrósaði Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor Háskólans á Bifröst, útskriftarnemum fyrir frábæran árangur. Þau væru…Lesa meira

true

Skaginn og Reynir Hellissandi fengu viðurkenningu frá KSÍ

Ýmsar árlegar viðurkenningar eru jafnan afhentar í aðdraganda ársþings Knattspyrnusambands Íslands og á ársþinginu sjálfu eftir atvikum sem verður haldið í Íþróttamiðstöð Fram í Úlfarsárdal næsta laugardag. Í gær var tilkynnt um þrenn verðlaun og tengjast tvö þeirra liðum af Vesturlandi; sjónvarpsþátturinn Skaginn og Reynir Hellissandi. Fjölmiðlaviðurkenningu KSÍ fyrir árið 2023 hljóta Snævar Sölvi Sölvason,…Lesa meira