Fréttir

true

Kvennalið ÍA fær liðsstyrk

Knattspyrnukonan Madison Brooke Schwartzenberger hefur samið við Knattspyrnufélag ÍA út leiktíðina 2024 en þó með fyrirvara um keppnisleyfi. Madison sem er fædd árið 2002 er hávaxin og sterkur varnarsinnaður miðjumaður með góða tæknilega getu og leikskilning. Hún kemur úr bandaríska háskólaboltanum þar sem hún spilaði fyrir University of South Florida við góðan orðstír. Skagakonur leika…Lesa meira

true

Grjót féll af vörubíl og önnur óhöpp í umferðinni

Í liðinni viku var ekið á gangandi vegfaranda á Akranesi, sá meiddist og var fluttur á sjúkrahúsið á Akranesi til aðhlynningar en meiðsli hans voru ekki talin alvarleg. Möl og grjót féll af vörubíl á Snæfellsnesvegi vegna bilunar í hlera, fólksbifreið sem ekið var að fór á og yfir grjótið með þeim afleiðingum að bifreiðin…Lesa meira

true

Nýr leikmaður í herbúðir Skagamanna

Norðmaðurinn Erik Tobias Sandberg hefur skrifað undir samning við Knattspyrnufélag ÍA til ársins 2025. Erik sem er fæddur árið 2000 er varnarmaður uppalinn hjá Lilleström en kemur til ÍA frá Jerv í Noregi. Þar lék hann á árunum 2021-2023 alls 83 deildarleiki og skoraði eitt mark. Til gamans má geta að Erik er einn af…Lesa meira

true

Sigur-garðar og Jarðmenn sameina krafta sína

Það raungerðist um síðustu áramót að garðaþjónustan Sigur-garðar sf. og Jarðmenn ehf. sameinuðu fyrirtæki sín í eina sæng og úr varð fyrirtækið Sigur-garðar ehf. Sólbakka 28c í Borgarnesi. Samkvæmt Sindra Arnfjörð hafa Sigur-garðar og Jarðmenn unnið lengi saman. „Við höfum verið að vinna í sömu verkum, Halli í Bæ, Haraldur Freyr Helgason, er þá að…Lesa meira

true

Alvarlegt ástand í fjargeymslu Byggðasafns

Á fundi menningar- og safnanefndar Akraneskaupstaðar síðasta miðvikudag tók nefndin fyrir ábendingu Jóns Allanssonar, forstöðumanns Byggðasafnsins í Görðum, um óviðunandi aðstæður í fjargeymslu Byggðasafnsins sem er staðsett í gulu skemmunni við Sementsbryggjuna. Húsnæðið hefur undanfarin átta ár verið nýtt til bráðabirgða sem fjargeymsla fyrir stærri og grófari safnmuni en það er um tvö hundruð fermetrar…Lesa meira

true

Búið að koma niður stálþilinu í Reykhólabryggju

Að kvöldi þriðjudags í liðinni viku náðist langþráður áfangi, þegar síðasti renningurinn var rekinn niður í stálþili bryggjunnar á Reykhólum. Upphaflega var áætlað að endurbyggingu bryggjunnar yrði að fullu lokið síðasta sumar, en alls kyns vesen tafði verkið, þannig að því lýkur ekki fyrr en á næsta sumri. Jafnframt því að bryggjan var endurbyggð var…Lesa meira

true

Sjálfvirkt meðalhraðaeftirlit tekið í notkun í Hvalfjarðargöngum

Búið er að ræsa sjálfvirkt meðalhraðaeftirlit í Hvalfjarðargöngum. Það er Vegagerðin sem ber ábyrgð á tæknilegri framkvæmd eftirlitsins, en Ríkislögreglustjóri á úrvinnslu og innheimtu sekta fyrir of hraðan meðalakstur. Sjálfvirkt meðalhraðaeftirlit byggir á því að meðalhraði ökutækis sem fer tiltekna vegalengd er reiknaður út með því að deila í vegalengdina með tíma. Þá vinna tvær…Lesa meira

true

Fögnuðu 40 ára afmæli

Í byrjun febrúar komu velunnarar Hjálparsveitar skáta á Akranesi saman í húsnæði Björgunarfélags Akraness að Kalmansvöllum 2. Tilefnið var að fagna því að 40 ár voru síðan Hjálparsveit skáta á Akranesi var stofnuð, en hún varð síðar hluti af Björgunarfélagi Akraness. Hópurinn snæddi saman kvöldverð, sagðar voru skemmtilegar og áhugaverðar sögur af starfi og sögu…Lesa meira

true

Skoðuðu nýja íþróttahúsið á Jaðarsbökkum

Fyrir helgi fóru starfsmenn Grundaskóla á Akranesi í heimsókn í nýja íþróttahúsið sem er að rísa á Jaðarsbökkum. Áætlað er að húsið verði tekið í notkun haustið 2025 og mun umbreyta allri íþróttakennslu við skólann. Aðstaðan mun verða eins og best verður á kosið og geta til dæmis heilu árgangarnir í skólanum farið saman í…Lesa meira

true

Lokaskýrsla um líðan og seiglu íslenskra bænda

Nýverið lauk Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri við rannsókn á líðan og seiglu íslenskra bænda, en Byggðastofnun styrkti skýrslugerðina á síðasta ári. Rannsóknin fól í sér netkönnun meðal félagsmanna Bændasamtaka Íslands þar sem líðan bænda var metin með tilliti til þunglyndis, kvíða og streitu. Að auki var lagt mat á seiglu íslenskra bænda en hún hefur…Lesa meira