Frá framkvæmdum við Reykhólabryggju. Ljósm. reykholar.is

Búið að koma niður stálþilinu í Reykhólabryggju

Að kvöldi þriðjudags í liðinni viku náðist langþráður áfangi, þegar síðasti renningurinn var rekinn niður í stálþili bryggjunnar á Reykhólum. Upphaflega var áætlað að endurbyggingu bryggjunnar yrði að fullu lokið síðasta sumar, en alls kyns vesen tafði verkið, þannig að því lýkur ekki fyrr en á næsta sumri. Jafnframt því að bryggjan var endurbyggð var dýpkað í höfninni og utan við bryggjuna þar sem viðlegukantur var lengdur. Ekki vildi betur til en svo þegar unnið var við dýpkunina að þá losnaði undirstaðan frá gamla stálþilinu og það hrundi niður að hluta og skarð myndaðist í bryggjuna. Þar með varð hún með öllu ónothæf og athafnapláss fyrir starfsmenn Borgarverks og Þörungaverksmiðjunnar varð enn minna en ráð var gert fyrir í byrjun framkvæmda.

Búið að koma niður stálþilinu í Reykhólabryggju - Skessuhorn