Sjálfvirkt meðalhraðaeftirlit tekið í notkun í Hvalfjarðargöngum

Búið er að ræsa sjálfvirkt meðalhraðaeftirlit í Hvalfjarðargöngum. Það er Vegagerðin sem ber ábyrgð á tæknilegri framkvæmd eftirlitsins, en Ríkislögreglustjóri á úrvinnslu og innheimtu sekta fyrir of hraðan meðalakstur.

Sjálfvirkt meðalhraðaeftirlit byggir á því að meðalhraði ökutækis sem fer tiltekna vegalengd er reiknaður út með því að deila í vegalengdina með tíma. Þá vinna tvær myndavélar saman fyrir hvora akstursstefnu, þar sem önnur er staðsett í byrjun vegarkaflans en hin í enda hans. Teknar eru myndir af öllum ökutækjum og búnaðurinn greinir hversu lengi ökumaður var að aka á milli myndavélanna og reiknar þannig út meðalhraða ökutækisins á kaflanum. Ef útreiknaður hraði er meiri en leyfilegt er telst viðkomandi ökumaður brotlegur og eftir það sér embætti Lögreglustjórans á Vesturlandi um frekari úrvinnslu og sektarboð. Öll gögn eru dulkóðuð og myndir af þeim sem ekki eru brotlegir eyðast sjálfkrafa í myndavélunum. Skilti sem gefa eftirlitið til kynna hafa verið sett upp beggja vegna ganganna.

„Sjálfvirkt hraðaeftirlit er ein af megin áherslum í umferðaröryggisáætlun stjórnvalda. Hraðamyndavélar eru fyrst og fremst settar upp á köflum þar sem slys eru mörg, en einnig er lögð áhersla á að setja slíkan búnað upp í jarðgöngum til að draga úr líkum á að slys verði,“ segir í tilkynningu.

Sjálfvirkt meðalhraðaeftirlit tekið í notkun í Hvalfjarðargöngum - Skessuhorn