
Lokaskýrsla um líðan og seiglu íslenskra bænda
Nýverið lauk Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri við rannsókn á líðan og seiglu íslenskra bænda, en Byggðastofnun styrkti skýrslugerðina á síðasta ári. Rannsóknin fól í sér netkönnun meðal félagsmanna Bændasamtaka Íslands þar sem líðan bænda var metin með tilliti til þunglyndis, kvíða og streitu. Að auki var lagt mat á seiglu íslenskra bænda en hún hefur ekki verið skoðuð sérstaklega áður. Höfundur skýrslunnar er Bára Elísabet Dagsdóttir.