
Grjót féll af vörubíl og önnur óhöpp í umferðinni
Í liðinni viku var ekið á gangandi vegfaranda á Akranesi, sá meiddist og var fluttur á sjúkrahúsið á Akranesi til aðhlynningar en meiðsli hans voru ekki talin alvarleg. Möl og grjót féll af vörubíl á Snæfellsnesvegi vegna bilunar í hlera, fólksbifreið sem ekið var að fór á og yfir grjótið með þeim afleiðingum að bifreiðin skemmdist nokkuð, ekki urðu slys á fólki.