Við fegrun lóða og umhverfis þarf bæði að beita vélum og mannafli við hellulagningu og stígagerð. Hér er ljósmynd úr safni Skessuhorns tekin í Skallagrímsgarði í Borgarnesi.

Sigur-garðar og Jarðmenn sameina krafta sína

Það raungerðist um síðustu áramót að garðaþjónustan Sigur-garðar sf. og Jarðmenn ehf. sameinuðu fyrirtæki sín í eina sæng og úr varð fyrirtækið Sigur-garðar ehf. Sólbakka 28c í Borgarnesi. Samkvæmt Sindra Arnfjörð hafa Sigur-garðar og Jarðmenn unnið lengi saman.

Sigur-garðar og Jarðmenn sameina krafta sína - Skessuhorn