Mynd frá æfingu síðasta föstudag. Ljósmyndir: vaks

FVA frumsýnir Grease í apríl

Það er skammt stórra högga á milli í menningarlífinu á Akranesi um þessar mundir. Fyrir skömmu lauk sýningum Grundaskóla á söngleiknum Úlfur úlfur sem naut mikilla vinsælda þar sem uppselt var á alls ellefu sýningar og í byrjun maí stefna nemendur á unglingastigi í Brekkubæjarskóla á að frumsýna söngleikinn Diskóeyjuna. Það er ekki allt upptalið því föstudaginn 12. apríl er ætlunin að frumsýna söngleikinn Grease í uppsetningu nemenda Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi og verður sýnt í Bíóhöllinni. Einar Viðarsson er leikstjóri, Flosi Einarsson sér um tónlistarstjórn og Margrét Hörn Jóhannsdóttir um öll dansatriði. Æfingar eru þegar hafnar á verkinu og blaðamaður Skessuhorns kíkti við á æfingu síðasta föstudagsmorgun í FVA. Þar hitti hann að máli Sigrúnu Eglu Unnarsdóttur sem er formaður leiklistarklúbbsins Melló ásamt Katrínu Maríu Ómarsdóttur sem var ekki á svæðinu.