Fjórar ARR kindur til viðbótar í Vífilsdal

Síðastliðinn föstudag komu niðurstöður vegna sýnatöku úr rúmlega helming ærstofnsins í Vífilsdal í Dölum, en þau sýni voru aðallega tekin úr eldri hluta ánna. Á vef RML er greint frá því að fjórar ær fundust sem bera ARR gen. „Þær eru allar talsvert skildar og því komin fram ákveðin vísbending um líklegar ættlínur. Næsta skref verður að fá greiningu á restina af hjörðinni í Vífilsdal (þ.e.a.s. þeim gripum sem ekki er þegar hægt að spá fyrir um arfgerð) og skoða tengda gripi í öðrum hjörðum,“ segir í frétt á rml.is

Fjórar ARR kindur til viðbótar í Vífilsdal - Skessuhorn