
Á myndinni eru frá vinstri Ómar Smárason frá KSÍ, Snævar Sölvi Sölvason og Kristján Jónsson. Ljósm. ksi.is
Skaginn og Reynir Hellissandi fengu viðurkenningu frá KSÍ
Ýmsar árlegar viðurkenningar eru jafnan afhentar í aðdraganda ársþings Knattspyrnusambands Íslands og á ársþinginu sjálfu eftir atvikum sem verður haldið í Íþróttamiðstöð Fram í Úlfarsárdal næsta laugardag. Í gær var tilkynnt um þrenn verðlaun og tengjast tvö þeirra liðum af Vesturlandi; sjónvarpsþátturinn Skaginn og Reynir Hellissandi.