
Útskriftir fara fram tvisvar á ári frá Háskólanum á Bifröst; í febrúar og júní. Þá útskrifast nemendur af öllum sviðum skólans í grunn- og meistaranámi, háskólagátt og endurmenntun. Ljósm. bifrost.is
Sagði Bifrastarglampann ekki muna dvína
Alls voru 88 nemendur útskrifaðir úr námi við Háskólann á Bifröst á háskólahátíð sem að þessu sinni fór fram í Hjálmakletti í Borgarnesi 17. febrúar sl. Þar af brautskráðist tæplega helmingur nemenda, eða 42, með meistaragráðu.