Eigendur Soffíu III á verkstæði Jörva. F.v. Steindór Theódórsson, Kristján Andrésson og Jakob Jónsson. Arnar Guðnason er svo eigandi fjórðungs hlutar í bílnum. Ljósm. mm

Unnið er að því að gera Soffíu III upp

Í verkstæðishúsi Jörva ehf á Hvanneyri, í skjóli Hauks Júlíussonar, er nú í gangi áhugavert verkefni. Þar vinna þrír karlar flesta laugardaga við uppgerð á Reykholtsrútunni Soffíu III, en þeir festu fyrir fjórum árum kaup á bílnum norður í Skagafirði og ætla sér nú að koma í sem best horf og mála í upprunalegu litunum. Bíllinn er byggður á Bens undirvagni af gerðinni 1313 A, en A-ið stendur fyrir að um er að ræða frambyggðan bíl. Byggt var yfir þennan bíl á Bifreiðaverkstæði Guðmundar Kjerúlf í Reykholti 1971-72 og fékk hann nafnið Soffía III og bar skrásetningarnúmerið M-719. Blaðamaður Skessuhorns leit inn á verkstæði Jörva síðastliðinn laugardag en þar voru þeir Jakob Jónsson, Kristján Andrésson og Steindór Theódórsson að slípa, pússa og ryðbæta og vinna bílinn hægt en örugglega undir sprautun. Þeir þrír eru eigendur rútunnar ásamt Arnari Guðnasyni, sem er sonur Guðna heitins Sigurjónssonar sem hannaði yfirbygginguna og starfaði með Guðmundi Kjerúlf við akstur og verkstæðisrekstur í Reykholti um tveggja áratuga skeið.

Unnið er að því að gera Soffíu III upp - Skessuhorn