
Kristinn Jónasson handhafi Náttúruverndarviðurkenningar Sigríðar í Brattholti, sem Guðlaugur Þór Þórðarson afhenti honum. Ljósm. af
Kristinn fékk náttúruverndarviðurkenninguna afhenta
Í gær var Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra á ferð um Vesturland. Síðdegis hitti hann m.a. hóp fólks í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi. Þar fræddi þjóðgarðsvörður um starfsemina sem þar fer fram. Í framhaldi af fræðslu og umræðum var Kristni Jónassyni bæjarstjóra Snæfellsbæjar afhent Náttúruverndarviðurkenning Sigríðar í Brattholti fyrir árið 2023. Tilkynnt var um þessa útnefningu 16. september í haust, á degi íslenskrar náttúru, en afhending fór fram nú.