Frá fundinum. Ljósm. reykholar.is

Líflegar umræður á fundi á Reykhólum um atvinnuþróun og nýsköpun

Síðasta þriðjudag var boðað til undirbúningsfundar að stofnun atvinnu- og uppbyggingarklasa í Reykhólahreppi. Markmiðið með fundinum var að skapa umræðu- og samstarfsvettvang fyrir alla sem áhuga hafa á atvinnuþróun, nýsköpun og annarri uppbyggingu í Reykhólahreppi. Hrafnkell Guðnason, verkefnastjóri framkvæmda og uppbyggingar á vegum Reykhólahrepps, var með framsögu og fór yfir hvað klasastarfsemi gengur út á. Í stuttu máli er það samstarf ólíkra aðila í tilteknum greinum eða á tilteknu svæði, þar sem haldið er utan um upplýsingar og þeim miðlað til félaga og eftir atvikum veittur stuðningur og leiðbeiningar um hvert á að snúa sér með ýmis erindi.

Líflegar umræður á fundi á Reykhólum um atvinnuþróun og nýsköpun - Skessuhorn