
Ritað undir samning um móttöku flóttafólks til sex mánaða
Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs Akraneskaupstaðar síðasta þriðjudag var þjónustusamningur um samræmda móttöku flóttafólks milli Akraneskaupstaðar og félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins með gildistíma til loka árs 2024 lagður fram til staðfestingar. Kveður samningurinn á um að sveitarfélagið þjónusti hundrað einstaklinga en sú tala tekur mið að raunfjölda þeirra sem eru nú þegar í þjónustu sveitarfélagsins.