
Hringferð þingflokks Sjálfstæðisflokksins hefst í dag
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins heldur í sína árlegu hringferð dagana 22. – 27. febrúar. „Í þessum fyrsta legg hringferðarinnar mun þingflokkurinn funda á 18 stöðum hringinn í kringum landið þar sem fólki gefst tækifæri til að eiga beint og milliliðalaust samtal við þingmenn og ráðherra um þau mál sem helst á brenna. Hringferðin hefst í Reykjanesbæ í kvöld, fimmtudagskvöldið 22. febrúar, á opnum fundi í Grófinni 8 klukkan 18 um áskoranir í útlendingamálum undir yfirskriftinni Verndarkerfi á þolmörkum. Frummælendur verða Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og utanríkisráðherra og Guðrún Hafsteinsdóttir oddviti Suðurkjördæmis og dómsmálaráðherra.