Stefán Broddi Guðjónsson sveitastjóri Borgarbyggðar, Skúli Þórðarson sviðsstjóri hjá UST, Ísak Sigurjón teymisstjóri í teymi efnamála, Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra, Sigrún Ágústsdóttir forstjóri UST, Þórhildur María Kristinsdóttir sérfræðingur náttúruverndarsvæða og Ásta Karen Helgadóttir sérfræðingur í teymi losunarbókhalds. Ljósmyndir: hig

Umhverfisstofnun opnar formlega skrifstofu á Hvanneyri

Það var mikið um dýrðir þegar Umhverfisstofnun Íslands opnaði formlega starfsstöð sína við Hvanneyrargötu 3 á Hvanneyri í gær. Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra nefndi í ávarpi sínu að eitt af markmiðum sínum í ráðuneytinu væri að fjölga störfum út á landi, enda eru flest verkefni sem hans ráðuneyti er að sinna á landsbyggðinni. „Það kemur ekkert í staðinn fyrir góða staðarþekkingu,“ sagði Guðlaugur í ávarpi sínu. Hann nefndi hversu mikilvægt það væri að vera með starfsstöð á Hvanneyri þar sem mikla sérþekkingu er að finna. Til dæmis eru í sama húsnæði starfsstöðvar Lands og Skóga, Matvælastofnunar, Matís, Rannsóknamiðstöðvar landbúnaðarins, Eflu, UMFÍ og Búnaðarsamtaka Vesturlands. Auk þess er stutt í sérfræðiþekkingu starfsfólks við Landbúnaðarháskólann.

Umhverfisstofnun opnar formlega skrifstofu á Hvanneyri - Skessuhorn