
Allt á síðasta snúningi í Lyngbrekku
Leikdeild Umf. Skallagríms hefur frá því í janúar æft leikritið Allt á síðasta snúningi, eftir Aðalstein Bergdal. Eins og margir þekkja er leikdeildin rekstraraðili félagsheimilisins Lyngbrekku þar sem æfingar fara fram. Frumsýna á verkið á hlaupársdag, fimmtudaginn 29. febrúar klukkan 20:30.
Blaðamanni Skessuhorns var boðið á æfingu á leikritinu í gærkvöldi. Ellefu manns eru í hlutverkum í sýningunni en leikstjórn er í höndum heimafólks; þeirra Margrétar Jóhannsdóttur og Jónasar Þorkelssonar. Leikarar koma síðan af stóru svæði, allt frá Laugargerði í norðri og suður í Borgarnes. „Við ákváðum að þessu sinni að spara okkur leikstjóra og því tók heimafólk það verkefni að sér. Félagið þarf að rétta sig við fjárhagslega eftir erfið ár frá Covid,“ sagði leikhópurinn blaðamanni. Flestar greiðandi samkomur eins og fermingarveislur, ættarmót og afmæli féllu niður kóvidárin og er leikdeildin enn að ná vopnum sínum eftir það tímabil. Reyndar er búið að koma varmadælum fyrir í húsinu og sparast nú verulegur kostnaður við kyndingu félagsheimilisins.
Frammi í sal sátu Margrét og Jónas og stýrðu hópnum. Þeim til fulltingis var hundurinn Tóbías, eða Tobbi, sem fylgt hefur hópnum í gegnum allar æfingar. Leikarar voru komnir í búninga og mynd var tekin að færast á verkið þegar blaðamaður leit við. Allt á síðasta snúningi er farsi í fimm þáttum. Verkið gerist á elliheimili fyrir leikara á ellilífeyri, en slík heimili finnast raunverulega erlendis. Þar dunda fyrrum leikarar sér jafnframt við að færa upp leikrit. Verkið er eins og fyrr segir farsi þar sem gömul ástarmál og ýmiss metingur fléttast saman, en leikstjórinn sem fenginn er til að stýra uppfærslunni er óþægilega reynslulítill og er í raun tekinn í bakaríið. „Það er ýmsu snúið upp í klofið og þar öðlast orð eins og uppátæki, loftnet og baugspjót nýja merkingu,“ segir í lýsingu á verkinu.
Frumsýning verður eins og fyrr segir í Lyngbrekku á fimmtudagskvöld, 2. sýning verður föstudaginn 1. mars, 3. sýning sunnudaginn 5. mars og sú fjórða þriðjudaginn 5. mars. Miðapantanir eru í síma 845-1615 og einnig má senda tölvupóst á netfangið: leikdeildskalla@gmail.com



