Fréttir

true

Einhamarsbátar landa nú í Ólafsvík

Áhöfnin á Gísla Súrssyni GK lét ekki smá byl á sig fá þegar þeir voru að landa 13 tonnum af fiski í Ólafsvík í gær, en útgerðarfélagið Einhamar í Grindavík gerir bátinn út ásamt línubátnum Auði Vésteins GK. Báðir þessir bátar landa afla sínum í Ólafsvík og vinnur Sjávariðjan í Rifi þorskaflann fyrir útgerðina og…Lesa meira

true

Efla starfsemi Sorgarmiðstöðvarinnar með auknum ríkisstuðningi

Þrjú ráðuneyti innan Stjórnarráðsins hafa gert samning við Sorgarmiðstöðina um aukinn stuðning við þjónustu og rekstur samtakanna. Miðstöðin sinnir stuðningi, fræðslu og ráðgjöf til syrgjenda og þeirra sem vinna að velferð syrgjenda. Sérstaklega er horft til þess að auka aðgengi að ráðgjafasamtölum, stuðningshópastarfi og jafningjastuðningi Sorgarmiðstöðvarinnar. Þá skal miðstöðin halda áfram að styðja við innleiðingu…Lesa meira

true

Mikið fannfergi í Grundarfirði

Síðustu daga hefur snjó kyngt niður í Grundarfirði sem og víðar um vestanvert landið. Snjóruðningstæki hafa verið að störfum látlaust til að hreinsa götur og halda þeim akfærum. Í gær, sunnudag, var úrkoman sérstaklega mikil og var þar enginn hvíldardagur fyrir snjóruðningsmenn og bæjarstarfsmenn sem unnu við mokstur fram á kvöld. Það var helst yngsta…Lesa meira

true

Séra Elínborg tekur við tilnefningum vegna biskupskjörs

Séra Elínborg Sturludóttir dómkirkjuprestur hefur ákveðið að taka við tilnefningum vegna biskupskjörs sem fram fer í mars. Hún staðfestir þetta í samtali við Morgunblaðið í morgun. Nú í byrjun febrúarmánaðar, á fárra daga tímabili, geta prestar og djáknar skilað kjörnefnd Þjóðkirkjunnar tilnefningum um frambjóðendur í embætti biskups Íslands. Tilnefndir einstaklingar ráða því svo hvort þeir…Lesa meira

true

Snæfell tapaði gegn toppliðinu

Viðureign Snæfells og ÍR í 1. deild karla í körfubolta fór fram á föstudagskvöldið og var leikið í Stykkishólmi. Gengi liðanna fyrir leik var ólíkt, Snæfell hafði tapað síðustu fjórum leikjum sínum í deildinni á meðan gestirnir úr Breiðholti höfðu unnið níu leiki í röð. Þeir byrjuðu betur í leiknum og voru tólf stigum yfir…Lesa meira

true

Vegagerðin varar við hríðarbyl um tíma í dag

Yfir miðjan daginn eru horfur á hríðarbyl hér vestanlands. Vegagerðin vill koma því á framfæri að frá hádegi í dag og þar til síðdegis, verða 14-18 m/s, blint og skafrenningur. Lykilleiðir eins og Holtavörðuheiði, Brattabrekka og Steingrímsfjarðarheiði gætu hæglega teppst við þessar aðstæður. Spáin fyrir landið í dag er sunnan 10-18 m/s og víða slydda…Lesa meira

true

Kæra ákvörðun sýslumanns

Matvælastofnun hefur kært ákvörðun Lögreglustjórans á Vestfjörðum um niðurfellingu máls þegar 3.500 laxar sluppu úr kví á eldissvæði Arctic Sea Farm við Kvígindisdal í Patreksfirði í ágúst 2023. Að mati Matvælastofnunar var innra eftirliti ábótavant og ekki var farið að verklagsreglum sem félagið hafði sett sér við slátrun sem leiddi til umfangsmikils stroks á eldisfiski.…Lesa meira

true

Skallagrímur með góðan sigur á Hrunamönnum

Hrunamenn og Skallagrímur mættust í 1. deild karla á föstudagskvöldið og var leikurinn á Flúðum. Átta stig skildu liðin að fyrir leik, Skallagrímur var í sjöunda sæti með tólf stig á meðan heimamenn voru í neðsta sætinu ásamt Snæfelli með fjögur stig. Það var jafnt á flestum tölum í byrjun leiks og staðan 13:13 eftir…Lesa meira

true

Loks var hægt að opna skíðasvæði Snæfellsness

Þegar snjó tók að kyngja niður í Grundarfirði fóru skíðaþyrstir íbúar að gjóa augunum upp í fjall til að gá hvort snjótroðarinn væri kominn á stjá. Það lyftist brúnin á þeim á laugardagskvöldið þegar ljósin frá troðaranum sáust færast upp og niður skíðabrekkuna enda var töluvert af snjó komið í brekkuna. Búið var að troða…Lesa meira

true

Kúabúum fækkaði um 20 á nýliðnu ári

Ýmislegt fróðlegt kemur fram í niðurstöðum skýrsluhalds ársins í mjólkurframleiðslu hér á landi, en þær hafa nú verið reiknaðar og birtar á vef Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins á rml.is. Meðalbú í mjólkurframleiðslu hér á landi stækkaði milli ára, sem er í takti við fækkun innleggsbúa og aukið innlegg mjólkur. Í samantekt RML kemur fram að meðalinnlegg á…Lesa meira