Vetur í Stykkishólmi. Ljósm. úr safni

Vegagerðin varar við hríðarbyl um tíma í dag

Yfir miðjan daginn eru horfur á hríðarbyl hér vestanlands. Vegagerðin vill koma því á framfæri að frá hádegi í dag og þar til síðdegis, verða 14-18 m/s, blint og skafrenningur. Lykilleiðir eins og Holtavörðuheiði, Brattabrekka og Steingrímsfjarðarheiði gætu hæglega teppst við þessar aðstæður.

Spáin fyrir landið í dag er sunnan 10-18 m/s og víða slydda eða snjókoma, en rigning á suðaustanverðu landinu og úrkomulítið norðaustanlands. Hiti um eða yfir frostmarki. Suðvestan 8-15 m/sek á morgun og él, en bjartviðri norðaustantil á landinu. Víða vægt frost.

Vegagerðin varar við hríðarbyl um tíma í dag - Skessuhorn