Séra Elínborg tekur við tilnefningum vegna biskupskjörs

Séra Elínborg Sturludóttir dómkirkjuprestur hefur ákveðið að taka við tilnefningum vegna biskupskjörs sem fram fer í mars. Hún staðfestir þetta í samtali við Morgunblaðið í morgun. Nú í byrjun febrúarmánaðar, á fárra daga tímabili, geta prestar og djáknar skilað kjörnefnd Þjóðkirkjunnar tilnefningum um frambjóðendur í embætti biskups Íslands. Tilnefndir einstaklingar ráða því svo hvort þeir svari því kalli eða ekki, en samkvæmt fyrirliggjandi reglum verða í kjöri þau þrjú sem flestar tilnefningar hljóta.

Séra Elínborg tekur við tilnefningum vegna biskupskjörs - Skessuhorn