
Kúabúum fækkaði um 20 á nýliðnu ári
Ýmislegt fróðlegt kemur fram í niðurstöðum skýrsluhalds ársins í mjólkurframleiðslu hér á landi, en þær hafa nú verið reiknaðar og birtar á vef Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins á rml.is. Meðalbú í mjólkurframleiðslu hér á landi stækkaði milli ára, sem er í takti við fækkun innleggsbúa og aukið innlegg mjólkur. Í samantekt RML kemur fram að meðalinnlegg á bú með innlegg allt árið nam 318.531 lítrum á síðasta ári samanborið við 298.655 lítra á árinu 2022. „Á árinu fækkaði innleggsbúum mjólkur um 20 og voru kúabú í framleiðslu 471 talsins nú um áramótin 2023/24. Sú þróun að búunum fækki og þau stækki er því enn í fullum gangi og sér ekki fyrir endann á henni. Á næstu misserum mun mjólkurframleiðendum án efa fækka áfram en undanfarna áratugi hefur þeim fækkað um 1,6 á mánuði og hefur það meðaltal verið ótrúlega stöðugt,“ segir í skýrslu RML.