Fréttir

true

Rakst utan í snjóplóg

Nokkuð var um útafakstur og óhöpp í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku enda vetrarfærð og víða nokkur hálka. Bílvelta varð á Hvalfjarðarvegi þar sem bifreið hafnaði utan vegar og valt, minni háttar meiðsli urðu á fólki sem var flutt á sjúkrahús til skoðunar og aðhlynningar. Óhapp varð er ökumaður hugðist aka fram úr…Lesa meira

true

Vegagerðin varar við byl á morgun, miðvikudag

Frá því fyrir hádegi á morgun og þar til síðdegis hvessir með vestanátt um allt suðvestanvert landið. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að mikil lausamjöl er nú yfir og því verður umtalsverður skafrenningur og þá bætir einnig í með éljum og snjókomu. Bæði verður blint og hætt við verulegri ófærð jafnt innan bæjar sem úti…Lesa meira

true

Fjölmenni mætti á kynningarfund um sameiningarviðræður – fréttaskýring

Hreppsnefnd Skorradalshrepps bauð íbúum til opins kynningar- og umræðufundar í Brún á mánudagskvöldið um sameiningarmál. Fundinum stýrði af festu Páll S Brynjarsson framkvæmdastjóri SSV. Í auglýstri dagskrá voru framsöguerindi, kynning á óformlegum sameiningarviðræðum við Borgarbyggð ásamt umræðu um valkostagreiningu við önnur sveitarfélög. Þá var opnað fyrir umræður. Á fundinn mætti 31 íbúi í Skorradalshreppi og…Lesa meira

true

Varð undan að láta vegna snjóþyngsla og sökk í höfninni

Snjó hefur nú kyngt niður á Snæfellsnesi undanfarna daga og raunar víða um landið. Í Stykkishólmi er samkvæmt úrkomumælum Veðurstofunnar mest búið að snjóa, eða um 40 cm jafnfallið. Báturinn Sigurbjörg II BA-89 var bundin við flotbryggju í Stykkishólmshöfn og varð undan snjóþyngslunum að láta og sökk, en atvikið uppgötvaðist um tíuleytið í morgun. Einungis…Lesa meira

true

Mosfellingar komu í heimsókn á Akranes

Velferðar- og mannréttindasvið Akraneskaupstaðar ásamt mennta- og menningarsviði tóku á móti góðum gestum frá Mosfellsbæ fimmtudaginn 25. janúar, þar sem þau fengu kynningu á þróun innleiðingar farsældarþjónustu í þágu barna og fjölskyldna hjá Akraneskaupstað. Á innleiðingartímabilinu hefur Akraneskaupstaður tekið á móti fjölmörgum sveitarfélögum og fleiri eru væntanleg en Akranes er eitt af fjórum frumkvöðlasveitarfélögum í…Lesa meira

true

Einar Margeir sló þrjú Akranesmet á RIG

Fyrri hluti Reykjavík International Games (RIG) var haldinn um helgina en um er að ræða afreksíþróttamót þar sem keppt er í meira en 20 einstaklingsíþróttagreinum. Þetta er í sautjánda sinn sem Reykjavíkurleikarnir fara fram en seinni hlutinn verður um næstu helgi. Það er Íþróttabandalag Reykjavíkur í samstarfi við sérsambönd ÍSÍ og íþróttafélögin í Reykjavík ásamt…Lesa meira

true

Tæp fimmtíu þúsund búa erlendis

Alls voru 49.870 íslenskir ríkisborgarar með skráð lögheimili erlendis 1. desember síðastliðinn samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá. Flestir voru skráðir í Danmörku eða 11.982. Næst flestir, eða 9.250 voru skráðir í Noregi, og í þriðja sæti var Svíþjóð þar sem 9.046 íslenskir ríkisborgarar voru skráðir með lögheimili. 61,9% íslenskra ríkisborgara sem eru með skráð lögheimili erlendis…Lesa meira

true

Blóðtaka úr fylfullum hryssum gekk almennt vel í fyrrasumar

„Út frá sjónarmiði dýravelferðar gekk blóðtaka úr fylfullum hryssum vel árið 2023 og ljóst að fyrirbyggjandi aðgerðir, svo sem þjálfun nýrra dýralækna og aukið innra og ytra eftirlit, hafa skilað árangri. Nýr gátlisti Matvælastofnunar, sem byggður er á greiningu á áhættuþáttum í starfseminni, reyndist gott verkfæri til að tryggja öflugt og samræmt ytra eftirlit sem…Lesa meira

true

Byrjað að reisa verkstæðisbyggingu í Grundarfirði

Vinna er hafin við að reisa nýja verkstæðið hjá Bifreiðaþjónustu Snæfellsness í Grundarfirði. Fljótlega eftir áramót kom flokkur manna frá Póllandi sem hefur yfirumsjón með þessum hluta verksins. Komin er góð mynd á húsið og hefur verkinu undið vel áfram enda láta starfsmennirnir ekki válynd veður hafa mikil áhrif á sig.Lesa meira

true

Björgvin Þór og Jóna Margrét komin í undanúrslit í Idol

Þriðji þáttur útsláttarkeppni Idol söngkeppninnar fór fram á föstudagskvöldið í Idolhöllinni að Fossaleyni og var sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2. Þema kvöldsins í þættinum var Hollywood og spreyttu keppendur sig á lögum úr bandarískum bíómyndum, teiknimyndum eða sjónvarpsþáttum. Tveir keppendur voru sendir heim eftir símakosninguna í þættinum, Elísabet Björgvinsdóttir og Ólafur Jóhann Pétursson.…Lesa meira