Allur hópurinn saman kominn á mynd. Ljósm. akranes.is

Mosfellingar komu í heimsókn á Akranes

Velferðar- og mannréttindasvið Akraneskaupstaðar ásamt mennta- og menningarsviði tóku á móti góðum gestum frá Mosfellsbæ fimmtudaginn 25. janúar, þar sem þau fengu kynningu á þróun innleiðingar farsældarþjónustu í þágu barna og fjölskyldna hjá Akraneskaupstað.