
Mikil spenna var í Idolhöllinni áður en tilkynnt var hvaða tveir keppendur þurftu að fara heim. Ljósm. stod2.is
Björgvin Þór og Jóna Margrét komin í undanúrslit í Idol
Þriðji þáttur útsláttarkeppni Idol söngkeppninnar fór fram á föstudagskvöldið í Idolhöllinni að Fossaleyni og var sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2. Þema kvöldsins í þættinum var Hollywood og spreyttu keppendur sig á lögum úr bandarískum bíómyndum, teiknimyndum eða sjónvarpsþáttum.