Jón E Einarsson oddviti flytur erindi sitt. Í pontu eru aðrir hreppsnefndarfulltrúar en Páll S Brynjarsson fundarstjóri lengst til vinstri. Ljósm. mm

Fjölmenni mætti á kynningarfund um sameiningarviðræður – fréttaskýring

Hreppsnefnd Skorradalshrepps bauð íbúum til opins kynningar- og umræðufundar í Brún á mánudagskvöldið um sameiningarmál. Fundinum stýrði af festu Páll S Brynjarsson framkvæmdastjóri SSV. Í auglýstri dagskrá voru framsöguerindi, kynning á óformlegum sameiningarviðræðum við Borgarbyggð ásamt umræðu um valkostagreiningu við önnur sveitarfélög. Þá var opnað fyrir umræður. Á fundinn mætti 31 íbúi í Skorradalshreppi og sköpuðust býsna líflegar umræður. Til marks um virkni fundargesta kvað helmingur þeirra sér hljóðs og lýsti ýmist áliti sínu eða/og bar fram fyrirspurnir til hreppsnefndar.