
Blóðtaka úr fylfullum hryssum gekk almennt vel í fyrrasumar
„Út frá sjónarmiði dýravelferðar gekk blóðtaka úr fylfullum hryssum vel árið 2023 og ljóst að fyrirbyggjandi aðgerðir, svo sem þjálfun nýrra dýralækna og aukið innra og ytra eftirlit, hafa skilað árangri. Nýr gátlisti Matvælastofnunar, sem byggður er á greiningu á áhættuþáttum í starfseminni, reyndist gott verkfæri til að tryggja öflugt og samræmt ytra eftirlit sem stofnunin framkvæmir. Brugðist var hratt við frávikum sem snéru að því að endurtaka þurfti stungu á nokkrum hryssum á fjórum bæjum snemma á blóðtökutímabilinu. Atvikin voru rakin til þess að nálar væru ekki nægilega beittar og endurskoðaði Ísteka tafarlaust verklag við brýningu og yfirferð á nálum,“ segir í niðurstöðum skýrslu Matvælastofnunar þar sem til skoðunar var dýravelferð við blóðtöku úr fylfullum hryssum síðasta sumar.