Þær Diljá Guðmundsdóttir og Hrafney Dóra Sveinsdóttir brostu sínu blíðasta er þær tóku sér smá pásu frá skíðabrekkunni. Ljósmyndir: tfk

Loks var hægt að opna skíðasvæði Snæfellsness

Þegar snjó tók að kyngja niður í Grundarfirði fóru skíðaþyrstir íbúar að gjóa augunum upp í fjall til að gá hvort snjótroðarinn væri kominn á stjá. Það lyftist brúnin á þeim á laugardagskvöldið þegar ljósin frá troðaranum sáust færast upp og niður skíðabrekkuna enda var töluvert af snjó komið í brekkuna. Búið var að troða fyrir hádegi í gær og upp úr hádeginu hófust sjálfboðaliðar handa við að koma öllu í lag svo hægt væri að opna lyftuna. Það gekk allt upp og lyftan var ræst klukkan 15:45 og var opin frameftir degi. Frítt var í lyftuna þennan fyrsta opnunardag og var góð mæting enda skíðafærið mjög fínt. Nú binda menn vonir til að hægt verði að hafa opið áfram en því stýra jú veðurguðirnir.

Loks var hægt að opna skíðasvæði Snæfellsness - Skessuhorn