Þau Telma Dís Ásgeirsdóttir og Breki Berg Tómasson voru kampakát í snjóhúsagerð með roða í kinnum. Ljósmyndir: tfk

Mikið fannfergi í Grundarfirði

Síðustu daga hefur snjó kyngt niður í Grundarfirði sem og víðar um vestanvert landið. Snjóruðningstæki hafa verið að störfum látlaust til að hreinsa götur og halda þeim akfærum. Í gær, sunnudag, var úrkoman sérstaklega mikil og var þar enginn hvíldardagur fyrir snjóruðningsmenn og bæjarstarfsmenn sem unnu við mokstur fram á kvöld. Það var helst yngsta kynslóðin sem gladdist yfir þessari sendingu að ofan en fjöldi barna sást úti að leika sér þegar létti til.

Mikið fannfergi í Grundarfirði - Skessuhorn