Fréttir

true

Byggingafulltrúi stöðvaði framkvæmdir við Skólabraut

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar síðastliðinn mánudag var til umræðu umsókn um byggingarleyfi fyrir húsið sem stendur við Skólabraut 18 á Akranesi. Fram kemur í fundargerð að húsið hafi verið byggt árið 1924 og falli undir þau hús/mannvirki sem eru umsagnarskyld hjá Minjastofnun Íslands vegna þess að það er byggt fyrir 1940. Skipulags- og…Lesa meira

true

Deiliskipulagstillaga fyrir Skipavíkursvæðið samþykkt til auglýsingar

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Stykkishólms hefur samþykkt að tillaga að deiliskipulagi fyrir hafnarsvæðið í Skipavík verði nú auglýst í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Svo var bókað á 12. fundi sveitarfélagsins sem fram fór í gær. Vinna við deiliskipulagið hefur staðið yfir frá því í nóvember 2022. Áður hafði sveitarfélagið veitt byggingarleyfi fyrir…Lesa meira

true

Líf að færast í Akraneshöfn

Heldur er að lifna yfir í Akraneshöfn eftir fremur rólegan vetur. Undantekningin var þó stutt en snörp loðnuvertíð í febrúar og mars. Í gær kom Víkingur AK að landi með fullfermi af kolmunna til bræðslu. Þá er smábátum að fjölga í höfninni og einhverjir útgerðarmenn þeirra sem hyggjast taka þátt í strandveiðum sem hefjast í…Lesa meira

true

Hús íslenskunnar vígt í dag og því gefið nafn

Nýtt hús Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Háskóla Íslands, sem hefur gengið undir nafninu „Hús íslenskunnar“, verður vígt í dag, 19. apríl, kl. 16.30. Við það tilefni verður nafn hússins jafnframt afhjúpað. Vígslan verður í beinu streymi: https://livestream.com/hi/husislenskunnar. Húsið verður svo opið almenningi á morgun, sumardaginn fyrsta, milli kl. 10 og 16. Þá…Lesa meira

true

Tímabundin lokun á gatnamótum Stillholts og Vesturgötu

Á mánudaginn hófust framkvæmdir við gatnamót Stillholts og Vesturgötu á Akranesi þar sem setja á upp hraðahindrun. Til stóð að gatnamótin yrðu lokuð í vikutíma en gert er ráð fyrir að verkinu ljúki um miðja næsta viku. Það hefur aðeins tafist vegna vinnu við háspennustreng og þá er sumardagurinn fyrsti á morgun sem er almennur…Lesa meira

true

Kór Menntaskólans við Hamrahlíð heldur tónleika á Vesturlandi

Eftir þriggja ára hlé vegna heimsfaraldursins er Kór Menntaskólans við Hamrahlíð á leið í sína árlegu tónleikaferð. Dagana 21. – 23. apríl ferðast kórinn um Vesturland og syngur í Grundarfirði, Stykkishólmi en endar á Akranesi. Föstudaginn 21. apríl syngur kórinn fyrir nemendur Grunnskóla Grundarfjarðar. Laugardaginn 22. apríl verður kórinn í Stykkishólmi og syngur í kirkjunni…Lesa meira

true

Jörvagleði í Dölum hefst í dag

Jörvagleði, lista- og menningarhátíð Dalabyggðar, verður sett klukkan 19:30 í dag, síðasta vetrardag, í Árbliki í Miðdölum. Á setningarathöfninni verður meðal annars fjallað um Ásmund Sveinsson myndhöggvara, fagnað 25 ára afmæli Glímufélags Dalamanna og hlítt á sögur og söng. Fjölbreyttir viðburðir eru á dagskrá Jörvagleðinnar í ár sem nær út sunnudaginn. Má þar nefna málverkasýningar…Lesa meira

true

Guðbjört Lóa lenti í öðru sæti á Íslandsglímunni

Íslandsglíman fór fram í íþróttahúsi Glerárskóla á Akureyri laugardaginn 15. apríl sl. Þar kepptu karlar um svokallað Grettisbelti og konur um Freyjumenið. Íslandsglíman var fyrst haldin árið 1906 en allt fram til ársins 2000 voru einungis karlar sem fengu að keppa á mótinu. Er þetta því í 22. sinn sem keppt er um Freyjumenið, en…Lesa meira

true

Skeifudagurinn framundan á Mið-Fossum

Skeifudagur hestamannafélagsins Grana á Hvanneyri fer fram á morgun, Sumardaginn fyrsta, í hestamiðstöð skólans að Mið-Fossum í Andakíl. Dagskráin hefst klukkan 13 með fánareið og setningu. Helgi Eyleifur Þorvaldsson brautarstjóri búfræðibrautar ávarpar gesti. Gestir geta notið þess að kynnast nánar nemendum og hrossum þeirra í vetur ásamt sýningaratriðum og úrslitum í Gunnarsbikarnum. Sigríður Bjarnadóttir brautarstjóri…Lesa meira

true

Framkvæmdir á Ytra-Hólmi

Þessa dagana eru framkvæmdir í gangi á bænum Ytra-Hólmi í Hvalfjarðarsveit þar sem verið er að breyta fjárhúsum í nautgripafjós. Haustið 2021 var tekin sú ákvörðun að hætta með sauðfé á bænum og frá því í fyrrasumar hefur verið unnið að þessum breytingum. Að sögn Arnfinns Teits Ottesen eru komnir nokkrir nautgripir inn í hús…Lesa meira