
Kór Menntaskólans við Hamrahlíð heldur tónleika á Vesturlandi
Eftir þriggja ára hlé vegna heimsfaraldursins er Kór Menntaskólans við Hamrahlíð á leið í sína árlegu tónleikaferð. Dagana 21. - 23. apríl ferðast kórinn um Vesturland og syngur í Grundarfirði, Stykkishólmi en endar á Akranesi.
Föstudaginn 21. apríl syngur kórinn fyrir nemendur Grunnskóla Grundarfjarðar. Laugardaginn 22. apríl verður kórinn í Stykkishólmi og syngur í kirkjunni klukkan 17. Aðgangseyrir er 2000 krónur, en ókeypis fyrir 18 ára og yngri. Sunnudaginn 23. apríl syngur kórinn fyrst fyrir íbúa á Höfða á Akranesi. Klukkan 17 verða síðan opnir tónleikar í sal Tónlistarskólans á Akranesi, á vegum Kalman listafélags. Aðgangseyrir er kr 2.000, frítt er fyrir 18 ára og yngri og miðasala er við innganginn. Allir velkomnir!
Kórinn er skipaður rúmlega sjötíu nemendum Menntaskólans við Hamrahlíð á aldrinum 16-19 ára. Efnisskrá kórsins prýðir fjölmargar íslenskar kórperlur, eftir til að mynda Jón Ásgeirsson, Atla Heimi Sveinsson og Jón Nordal. Einnig hljómar hið kraftmikla kórverk Páls Ísólfssonar Brennið þið vitar í nýlegri umritun fyrir blandaðar raddir eftir stjórnanda kórsins, Hreiðar Inga Þorsteinsson. Allir tónleikar enda á kórperlu Inga T. Lárussonar Ó, blessuð vertu, sumarsól, þar sem sumarkomu er fagnað með samsöng.
