
Teikning af húsi íslenskunnar. Efnt var til samkeppni um nafn hússins og verður það gert kunnugt síðdegis í dag. Teikning/ Stjórnarráðið
Hús íslenskunnar vígt í dag og því gefið nafn
Nýtt hús Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Háskóla Íslands, sem hefur gengið undir nafninu „Hús íslenskunnar“, verður vígt í dag, 19. apríl, kl. 16.30. Við það tilefni verður nafn hússins jafnframt afhjúpað. Vígslan verður í beinu streymi: https://livestream.com/hi/husislenskunnar.