Fréttir

true

Enn er til skoðunar að kaupa Röst

Vegagerðin hefur auglýst útboð á slipptöku og ýmsum breytingum á norsku ferjunni Röst. G. Pétur Matthíasson upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar segir í samtali við Skessuhorn að útboðið sé með fyrirvara þar sem enn er til skoðunar hjá Vegagerðinni að kaupa ferjuna en af samningum hefur ekki orðið. Á ferjan Röst að koma til siglinga á Breiðafirði í…Lesa meira

true

Slíta briddsvetrinum næsta mánudag

Í gærkvöldi var spilaður tvímenningur hjá Bridgefélagi Borgarfjarðar í Logalandi með þátttöku tíu para. Líkt og fyrr í vetur var Skagastrákurinn Viktor Björnsson að gera góða hluti, að þessu sinni með Ólafi Grétari Ólafssyni. Höfðu þeir ríflega 64% skor. Í öðru sæti urðu Jón Eyjólfsson og Baldur Björnsson með 57,3% og í þriðja sæti skólastjórabrýnin…Lesa meira

true

Fundu kannabishlaupbangsa í bifreið

Miðvikudaginn 29. mars síðastliðinn stöðvaði lögregla ökumann bifreiðar á 143 kílómetra hraða á móts við Stekk á Vesturlandsvegi. Hann var síðan tekinn í lyfjapróf og greindist jákvæður. Ökumaðurinn var handtekinn og fluttur á lögreglustöðina í Borgarnesi. Heimild var fengin til að leita í bifreiðinni og fundust þar 40 e-töflur og einnig einkennilegur pakki. Hann var…Lesa meira

true

Leggja til að Kjalvegur verði endurnýjaður og opinn stóran hluta ársins

Átta þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi um endurnýjun vegarins yfir Kjöl með einkaframkvæmd. Njáll Trausti Friðbertsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, er fyrsti flutningsmaður tillögunnar. Með heilsársvegi yfir Kjöl er mögulegt að stytta til muna leiðina landshorna á milli og auðvelda þannig ferðir á milli Suður- og Norðurlands og opna fyrir möguleika á…Lesa meira

true

Ellefu hundruð fermetra iðnaðarhús verður reist í sumar

Í iðnaðarhverfinu við Sólbakka 31 í Borgarnesi eru nú komnir sökklar að 1.100 fermetra iðngarðahúsi. Það er Trésmiðja Eiríks J Ingólfssonar sem stendur í þessum framkvæmdum, en keypt var hús frá H Haukssyni. Efnið er þegar komið og stendur uppraðað við trésmiðju EJI neðar við Sólbakkann. Það verður reist í sumar, malbikað í kringum húsið…Lesa meira

true

Dalakona tilnefnd til Íslensku lýðheilsuverðlaunanna 2023

Dalakonan Ingibjörg Jóhannsdóttir er tilnefnd til íslensku lýðheilsuverðlaunanna sem forseti Íslands efnir til í fyrsta sinn í ár. Íslensku lýðheilsuverðlaunin eru samstarfsverkefni embættis forseta Íslands, heilbrigðisráðuneytisins, Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, embætti landlæknis og Geðhjálpar. Markmið þeirra er að vekja athygli á mikilsverðu framlagi á sviði lýðheilsu og auka með þeim hætti áhuga á bættri heilsu…Lesa meira

true

Krabbameinsfélagið gaf Brákarhlíð lyfjadælu

Ný stjórn var kosin á aðalfundi Krabbameinsfélags Borgarfjarðar sem haldinn var 11. apríl síðastliðinn. Á fundinum afhenti Krabbameinsfélagið Brákarhlíð nýja lyfjadælu að gjöf, en hún mun nýtast vel í umönnun krabbameinssjúkra. Bent er á að netfang Krabbameinsfélags Borgarfjarðar er borgarfjordur@krabb.isLesa meira

true

Kynna á morgun skýrslu um beislun vindorku

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, skipaði síðastliðið sumar þriggja manna starfshóp sem fékk það hlutverk að skoða og gera tillögur til ráðherra um nýtingu vindorku, þ.á m. um lagaumhverfi hennar og hvernig verði tekið á ýmsum álitamálum. Í byrjun febrúar var ákveðið að áfangaskipta starfi hópsins þannig að fyrst yrði skilað skýrslu sem…Lesa meira

true

Regus hefur opnað skrifstofurými í Stykkishólmi

Regus hefur nú formlega tekið við rekstri skrifstofurýma við Aðalgötu 10 í Stykkishólmi. Húsið hýsti áður starfsemi Búnaðarbankans og síðar Arion banka en það var félagið Snæfell sem festi kaup á húsnæðinu fyrir um tveimur árum síðan. Þá voru sett upp skrifstofurými í húsinu sem auglýst voru til útleigu sem og að starfsemin var nýtt…Lesa meira