Á Kjalvegi. Ljósm. frá 2018/midjan.is

Leggja til að Kjalvegur verði endurnýjaður og opinn stóran hluta ársins

Átta þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi um endurnýjun vegarins yfir Kjöl með einkaframkvæmd. Njáll Trausti Friðbertsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, er fyrsti flutningsmaður tillögunnar. Með heilsársvegi yfir Kjöl er mögulegt að stytta til muna leiðina landshorna á milli og auðvelda þannig ferðir á milli Suður- og Norðurlands og opna fyrir möguleika á þróun nýrra ferðamannaleiða.

Leggja til að Kjalvegur verði endurnýjaður og opinn stóran hluta ársins - Skessuhorn