
Sökklar að 1.100 fermetra húsi við Sólbakka 31. Ljósm. mm
Ellefu hundruð fermetra iðnaðarhús verður reist í sumar
Í iðnaðarhverfinu við Sólbakka 31 í Borgarnesi eru nú komnir sökklar að 1.100 fermetra iðngarðahúsi. Það er Trésmiðja Eiríks J Ingólfssonar sem stendur í þessum framkvæmdum, en keypt var hús frá H Haukssyni. Efnið er þegar komið og stendur uppraðað við trésmiðju EJI neðar við Sólbakkann. Það verður reist í sumar, malbikað í kringum húsið og stefnt að sölu innan tíðar.