Frá vinstri: Eggert Halldórsson stjórnarmaður í Snæfelli, Erna Karla Guðjónsdóttir og Tómas Ragnarz hjá Regus, Halldór Árnason og Gunnlaugur Auðunn Árnason stjórnarmenn í Snæfelli. Myndir: Steinunn Þorvaldsdóttir

Regus hefur opnað skrifstofurými í Stykkishólmi

Regus hefur nú formlega tekið við rekstri skrifstofurýma við Aðalgötu 10 í Stykkishólmi. Húsið hýsti áður starfsemi Búnaðarbankans og síðar Arion banka en það var félagið Snæfell sem festi kaup á húsnæðinu fyrir um tveimur árum síðan. Þá voru sett upp skrifstofurými í húsinu sem auglýst voru til útleigu sem og að starfsemin var nýtt sem frumkvöðlasetur undir nafninu Árnasetur. Gunnlaugur Auðunn Árnason stjórnarmeðlimur í Snæfelli segir reksturinn ekki hafa gengið eins og best var á kosið og fagnar því nú að Regus hafi tekið húsnæðið á leigu og hefji þar rekstur.

Regus hefur opnað skrifstofurými í Stykkishólmi - Skessuhorn