
Skjáskot af deiliskipulagstillögunni sem samþykkt var til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar.
Deiliskipulagstillaga fyrir Skipavíkursvæðið samþykkt til auglýsingar
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Stykkishólms hefur samþykkt að tillaga að deiliskipulagi fyrir hafnarsvæðið í Skipavík verði nú auglýst í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Svo var bókað á 12. fundi sveitarfélagsins sem fram fór í gær.