Húsið við Skólabraut 18. Ljósm. vaks

Byggingafulltrúi stöðvaði framkvæmdir við Skólabraut

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar síðastliðinn mánudag var til umræðu umsókn um byggingarleyfi fyrir húsið sem stendur við Skólabraut 18 á Akranesi. Fram kemur í fundargerð að húsið hafi verið byggt árið 1924 og falli undir þau hús/mannvirki sem eru umsagnarskyld hjá Minjastofnun Íslands vegna þess að það er byggt fyrir 1940. Skipulags- og umhverfisráð átaldi framgang málsins harðlega en hafist var handa við klæðningu hússins og uppsetningu svala áður en málið fór í grenndarkynningu. Þarna var því um óleyfisframkvæmd að ræða og stöðvaði byggingafulltrúi Akraneskaupstaðar framkvæmdir við verkið 22. mars síðastliðinn.

Byggingafulltrúi stöðvaði framkvæmdir við Skólabraut - Skessuhorn