
Pétur mikli og pramminn sem notaður er við botnhreinsun hafnarinnar. Ljósm. mm
Líf að færast í Akraneshöfn
Heldur er að lifna yfir í Akraneshöfn eftir fremur rólegan vetur. Undantekningin var þó stutt en snörp loðnuvertíð í febrúar og mars. Í gær kom Víkingur AK að landi með fullfermi af kolmunna til bræðslu. Þá er smábátum að fjölga í höfninni og einhverjir útgerðarmenn þeirra sem hyggjast taka þátt í strandveiðum sem hefjast í byrjun maí. Á miðbryggjunni mátti m.a. sjá smábátana Mjallhvíti og Jón Forseta sem bíða þess að verða hífðir og settir á flot.