Frá vinstri: Elín Eik Guðjónsdóttir, Kristín Embla Guðjónsdóttir og Guðbjört Lóa Þorgrímsdóttir.

Guðbjört Lóa lenti í öðru sæti á Íslandsglímunni

Íslandsglíman fór fram í íþróttahúsi Glerárskóla á Akureyri laugardaginn 15. apríl sl. Þar kepptu karlar um svokallað Grettisbelti og konur um Freyjumenið. Íslandsglíman var fyrst haldin árið 1906 en allt fram til ársins 2000 voru einungis karlar sem fengu að keppa á mótinu. Er þetta því í 22. sinn sem keppt er um Freyjumenið, en ekki var keppt árið 2020 vegna Kórónaveirufaraldurs. Þrjár konur voru skráðar til leiks í ár og sex karlar.

Guðbjört Lóa lenti í öðru sæti á Íslandsglímunni - Skessuhorn