Fréttir

true

Rútubílsstjóri hugðist stytta sér leið með hörmulegum afleiðingum

Eftir hádegið á síðasta vetrardag varð alvarlegt umferðarslys í Skagafirði. Ökumaður hópferðabifreiðar, með 13 erlenda ferðamenn auk íslensks leiðsögumanns um borð, hugðist stytta sér leið og ók yfir gamla trébrú sem liggur yfir Húseyjarkvísl, skammt frá Saurbæ í Skagafirði, með þeim afleiðingum að brúin gaf sig og rútan skall á hliðina niður í ána. Talið…Lesa meira

true

Hoppað um Hólminn

Í gær, á sumardaginn fyrsta, skrifaði Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson bæjarstjóri Sveitarfélagsins Stykkishólms undir samstarfsyfirlýsingu um stöðvalausa rafskútuleigu í Stykkishólmi. Rafskútuleigan Hopp hóf í framhaldinu þjónustu sína í Stykkishólmi. Hopp býður upp á skammtímaleigu á rafskútum/rafdrifnum hlaupahjólum. Markmið sveitarfélagsins með þessu er að auðvelda íbúum og gestum að komast ferða sinna með umhverfisvænum hætti. Að…Lesa meira

true

ÍA og Kári úr leik í Mjólkurbikarnum

Skagamenn mættu Keflvíkingum í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í knattspyrnu síðasta miðvikudag og fór leikurinn fram í miklu roki á gervigrasvellinum við Nettóhöllina í Reykjanesbæ. Skagamenn byrjuðu betur og áttu skot í stöng eftir aukaspyrnu strax á annarri mínútu og Gísli Laxdal Unnarsson átti síðan skot í slána á 20. mínútu en markalaust í hálfleik.…Lesa meira

true

Samfélagið, kyrrðin og rafræn skilríki það besta við Ísland

Miroslav Honek er fæddur í 8.000 manna smábæ í Tékklandi þar sem hann m.a. kynntist núverandi eiginkonu sinni og barnsmóður, Elisku. Þau fluttu ung til borgarinnar Budweis þar sem þau fóru að vinna með manni sem hafði nýverið snúið heim frá Íslandi en sá hafði starfað í tvö ár á Hellnum á Snæfellsnesi. Ævintýraþrá hafði…Lesa meira

true

Ragnhildur Eva tekur sæti í sveitarstjórn

Jóhanna Marín Björnsdóttir frá Sjálfstæðisflokki tók sæti sem aðalfulltrúi í sveitarstjórn Borgarbyggðar um síðustu áramót eftir að Lilja Björg Ágústsdóttir vék sæti í sveitarstjórn eftir að hafa verið ráðin sviðsstjóri. Jóhanna Marín óskaði á fundi sveitarstjórnar 13. apríl síðastliðinn eftir tímabundinni lausn frá störfum sveitarstjórnarfulltrúa. Sveitarstjórn samþykkti að veita henni tímabundið leyfi frá starfi sínu…Lesa meira

true

Slökkviliðsnámskeið á Snæfellsnesi – myndasyrpa

Slökkviliðsmenn frá Brunavörnum Árnessýslu komu um liðna helgi og héldu verklegt námskeið fyrir hlutastarfandi slökkviliðsmenn frá Snæfellsbæ, Grundarfirði og Stykkishólmi. Þetta var verklegur hluti námskeiðs 3 og 4 þar sem megináhersla er á björgun úr bílflökum og viðbrögð við eiturefnaslysum. Leiðbeinendur voru þeir Eyjólfur Óli Jónsson og Jón Þór Jóhannsson. Eftir námskeiðið voru mennirnir svo…Lesa meira

true

Stefnir á hundrað fjallaferðir á árinu

Rætt við Viðar Bjarnason fjallgöngugarp á besta aldri Skagamaðurinn Viðar Bjarnason, sem verður 73 ára í júlí á þessu ári, tók upp á því á síðasta ári að ganga á fjöll. Alls fór hann um 60 ferðir frá því í júlíbyrjun til áramóta og hefur ekki litið til baka síðan. Blaðamaður kíkti við í heimsókn…Lesa meira

true

Afkoma Borgarbyggðar tæpum hálfum milljarði betri en áætlað var

Drög að ársreikningi Borgarbyggðar fyrir árið 2022 voru kynnt á fundi byggðarráðs í morgun. Þau ánægjulegu tíðindi er þar að finna að rekstrarniðurstaða síðasta árs er miklum mun betri en áætlað hafði verið, raunar sem nemur tæpum hálfum milljarði króna. Í stað 107 milljóna króna taps, eins og gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun, er…Lesa meira

true

Nýr leikmaður til ÍA – Skagamenn hefja leik í Mjólkurbikarnum í kvöld

Skagamenn hafa fengið liðsstyrk fyrir tímabilið í Lengjudeildinni í knattspyrnu í sumar. Svíinn Pontus Lindgren er hafsent sem kemur að láni frá KR út þetta tímabil. Pontus var áður hjá Íslendingaliðinu Norrköping í Svíþjóð en þar hafa nokkrir leikmenn ÍA komið við sögu og Arnór Sigurðsson leikur með félaginu um þessar mundir. Pontus er 22…Lesa meira

true

Skýrsla um vindorku var kynnt í morgun

Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytið kynnti í dag skýrslu um vindorku sem unnin er af starfshópi sem skipaður var af Guðlaugi Þór Þórðarsyni í júlí 2022. Starfshópinn skipa þau Hilmar Gunnlaugsson, Björt Ólafsdóttir og Kolbeinn Óttarsson Proppé og tóku þau öll til máls á fundinum í morgun. Skýrslan er greining á viðfangsefninu og útlistar mögulegar leiðir…Lesa meira