
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, ásamt þeim Hilmari Gunnlaugssyni, Björtu Ólafsdóttur og Kolbeini Óttarssyni Proppé, sem skipuðu starfshópinn. Ljósm. Umhverfisráðuneytið.
Skýrsla um vindorku var kynnt í morgun
Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytið kynnti í dag skýrslu um vindorku sem unnin er af starfshópi sem skipaður var af Guðlaugi Þór Þórðarsyni í júlí 2022. Starfshópinn skipa þau Hilmar Gunnlaugsson, Björt Ólafsdóttir og Kolbeinn Óttarsson Proppé og tóku þau öll til máls á fundinum í morgun. Skýrslan er greining á viðfangsefninu og útlistar mögulegar leiðir við vinnslu reglugerðar.