
Afkoma Borgarbyggðar tæpum hálfum milljarði betri en áætlað var
Drög að ársreikningi Borgarbyggðar fyrir árið 2022 voru kynnt á fundi byggðarráðs í morgun. Þau ánægjulegu tíðindi er þar að finna að rekstrarniðurstaða síðasta árs er miklum mun betri en áætlað hafði verið, raunar sem nemur tæpum hálfum milljarði króna. Í stað 107 milljóna króna taps, eins og gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun, er rekstrarniðurstaða jákvæð um 368 milljónir króna. Afkomubati er því talsveður samhliða mikilli fjölgun íbúa og öflugu atvinnulífi. Í bókun byggðarráðs segir:
„Rekstrarniðurstaða samstæðu Borgarbyggðar var jákvæð um 368 m.kr. á árinu 2022. Tekjur jukust um 19,2% og voru 6.053 m.kr. Rekstrargjöld samstæðunnar án afskrifta jukust á sama tíma um 9,0%. Rekstrarniðurstaða samstæðu fyrir afskriftir var jákvæð um 824 m.kr. sem samsvarar 13,6% af tekjum. Veltufé frá rekstri samstæðunnar var 846 m.kr. eða 14,0% af tekjum og handbært fé frá rekstri var 549 m.kr.“