Hér er verið að glenna upp vélarhlífina svo hægt sé að aftengja rafgeyminn. Ljósmyndir: tfk

Slökkviliðsnámskeið á Snæfellsnesi – myndasyrpa

Slökkviliðsmenn frá Brunavörnum Árnessýslu komu um liðna helgi og héldu verklegt námskeið fyrir hlutastarfandi slökkviliðsmenn frá Snæfellsbæ, Grundarfirði og Stykkishólmi. Þetta var verklegur hluti námskeiðs 3 og 4 þar sem megináhersla er á björgun úr bílflökum og viðbrögð við eiturefnaslysum. Leiðbeinendur voru þeir Eyjólfur Óli Jónsson og Jón Þór Jóhannsson.

Slökkviliðsnámskeið á Snæfellsnesi - myndasyrpa - Skessuhorn